16.9.2009 | 10:26
16.09
Heyrði í gær að það væri til athugunar að afskrifa skuldir þeirra sem sem skulduðu meira en verðmæfi eignarinnar sem fólk ætti. Það er lítið réttlæti í því að afskrifa hjá sumum og sumum ekki. Afskiftir verða að ganga jafnt yfir alla sem hafa tekið lán til íbúðakaupa. Tekjuhliðin má ekki skipta máli vegna þess að allir geta misst heilsuna eða vinnuna hvort sem fólk er í láglaunastörfum eða hátekjustörfum. Eina leiðin til að sátt í þjóðfélaginu geti myndast er að láta jafnt yfir alla ganga, verðtryggð lán eða gengistryggð. Þeir fáu sem eiga skuldlausar eignir hafa í gegn um árin grætt á því að vera ekki með lán svo að það ætti ekki að vera þörf fyrir að greiða þeim peninga.
Annars virðist vera sem að það eigi fyrst og fremst að bjarga sumum fyrirtækjum og við almenningur eigum að sitja á hakanum. Mér er nokk sama þó svo að við séum að bæta við eignasafnið okkar, við eigum sama rétt og aðrir á niðurfellingu skulda. Eða réttara að afskrifa verðtrygginguna, lánið sjálft getum við alveg borgað en verðtryggingin er hreint og beint óréttlæti. Lántakandinn tekur 100% áhættu en lánveitandinn tekur enga áhættu. Það hefur ekkert að segja að lengja lánstímann, fólk situr þá bara sem fangar í húsnæðinu sínu, getur hvorki stækkað við sig eða minnkað.
Sennilega ætti þjóðin að fara að fordæmi Bjarna Ármanns og vera full ábyrgðar og greiða ekki skuldir sínar.
Annars var ofurkraftur á kellu í gær, þrif og tiltekt á fullu. Það var sosum kominn tími til að þurrka aðeins af og ganga frá dóti. Rigningin er orðin freka þreytandi og spáin er víst rigning áfram næstu daga. Sem þyðir að það er ekkert sérstaklega spennandi að fara austur um helgina en samt verður farið. Ætla að sækja vagninn í dag og koma honum í geymslu þar til gert verður við hann. Fá að geyma hann fyrir neðan hús hjá mömmu.
Miðvikudagurinn verður vonandi dagur dugnaðar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.9.2009 | 10:26
Haustlægðir
Lægðirnar eru að koma hver af annarri upp að landinu með tilheyrandi roki og rigningu. Hundleiðinlegt vægt tekið til orða. Núna er ég í svartsýniskasti og er hreinlega í vafa hvort við eigum að halda áfram með óðalið ef veðrið fer að verða svona leiðinlegt ásamt því að verða að taka vagninn heim.
Ef öll steypan væri búin þá væri útlitið betra held ég. Vonandi tekst Sverri að fá annan í mótin með sér, þá ættum við að geta verið 4-5 í þessu og þá ætti þetta að ganga hraðar fyrir sig. Veit að Pétur verður feginn ef annar fæst í þetta svo að hann þurfi ekki að erfiða svona mikið. Hans tími í of mikilli vinnu er liðinn. Hann kvartar ekkert of hátt en hann er svo þreyttur eftir hverja helgi, þrátt fyrir að oft höfum við verið í slökun á sunnudeginum. Hins vegar hefur hann gaman að því að vinna þarna og er fullur áhuga. Annað en þegar við vorum að byggja hérna heima.
Draumurinn var að núna hefði verið kofinn verið rúmlega fokheldur en það eru margar ástæður fyrir því að það er ekki komið svo langt. Teikningarnar komu seinna, breytingar og margt fleira sem örsakar þessa seinkun en betra hefði það nú verið að vinna í sól og þurrki en þessu haustveðri. Núna sé ég eftir því að hafa ekki verið búin að kaupa stoðirnar og vinna í þeim, þær eru svo langar að það er ekki hægt að vinna í þeim í bílskúrnum. Núna hefði verið gott að eiga þær tilbúnar og fúavarðar.
Sumrin eru orðin tími þurrka og sólar en haustin tími rigninga og roks. Það þýðir víst lítið að safna undirskriftum og biðja veðurguðinn að jafna þessu betur út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2009 | 13:26
13. september 2009
Í dag eru 109 ár síðan Amma mín fæddist.
En fyrsta steypan var í gær og var það merkur áfangi. Við stoppuðum ekki lengi við fyrir austan í gær, vorum komin heim aftur um 6 leytið. Sáum engann tilgang í að vera áfram sökum veðurs. Súld og þoka er ekki áhugavert vinnuveður.
En það er spurning hvort við förum austur í dag til að taka vagninn niður vegna veðurspáar næstu sólarhringa. En það á víst að gera hífandi rok fyrir austan á morgunn og næsta dag. Held samt að vagninn muni þola alveg rokið. Ég gæti líka verið í vagninum næstu nótt og þar til veðrið gengur niður. Kannski er öruggast að taka vagninn niður en það er bara svo leiðinlegt að þurfa að byrja hverja helgi á því að setja hann upp og enda hverja helgi á að setja hann niður. Fyrir utan að það eru meiri líkur á að honum verði stolið þannig. Við ættum að geta verið í vagninum einhverjar vikur í viðbót svo framarlega sem veturinn fari ekki að bresta á með fullum þung. Hef bara enga trú á því að það muni ske.
En maður á víst ekki að taka áhættur með annarra eigur, er alls ekki viss um að ég vildi að aðrir tækju áhættur með mínar eigur. Hins vegr veit ég að Auður hefði ekkert á móti því að eignast Valley vagn 
. Þá gætum við átt eins vagna
vinkonurnar og tvíburarnir. Vil bíða eftir nánari veðurfréttum. Það verða á morgunn alla vega 3 vikur síðan okkar skemmdist svo að það verður kannski rokhaust í ár.
Kemur í ljós á eftir hvort við förum austur eður ei.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2009 | 08:32
Skrýtið
Ekki er enn búið að steypa en það verður gert um hádegisbil í dag. Höfum ekki verið heima á föstudagskvöldi síðan um versló ef ég man rétt. Förum austur á eftir eða tímanlega til að versla líka á Selfossi fyrir hádegið. Sennilega verður Samkaup fyrir valinu, nenni ekki að fara í Krónuna eða bónus fyrir lítil innkaup. Ætla líka að koma við í Guðnabakarí og kaupa hafrasnúða en þeir eru algjört sælgæti. Sé okkur alveg í anda sækja okkur allar nauðsynjar á Selfoss. Sakna samt KÁ og Hafnar.
Er orðin bóndi á feisinu og er að læra á það kerfi, tapaði nokkrum uppskerum af jarðarberjum í nótt á meðan ég svaf en ákvað að rækta frekar seinlegri tegundir um helgina
Kannski ég gerist míni garðyrkjubóndi í sveitinni þegar fram líða stundir. Þar ætti að vera hægt að rækta ýmsar tegundir í skjóli og í gróðurhúsi og fyrst það er hægt að rækta eplatré á að mig minnir Eyrarbakka þá ætti það að vera hægt hjá mér.
Sjálfvirku veðurstöðvarnar segja að það sé þurrt svo til alveg fyrir austan en það er annað en hérna í bænum. Þessi leiðinda bleyta er víst í spánum fram eftir vikunni því miður.
Dreymdi skrýtinn draum í nótt sem er svolítið í móðu en man samt slatta. Skemmtilegur en skrýtinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2009 | 11:25
Svekkelsi
Þá er það komið á hreint, okkur er boðið 280þús - 95þús í sjálfsábyrgð= 185þús fyrir tjaldvagninn. Við látum gera við hann og seljum hann svo næsta vor eða sjáum til. Við kunnum orðið mjög vel við vagninn sem við erum með í láni, sofum vel í honum þrátt fyrir alla rennilása, eldhúsið er frábært svo að það verður erfitt að fara aftur í okkar vagn. Tíminn leiðir það í ljós hvort við fáum okkur nýjan vagn eða höldum okkur við þann gamla.
Það á að steypa í dag eða í fyrramálið, Pétur vill helst vera heima þessa helgi og vinna í Toyotunni en ég vil fara austur. Spurning hvort við gerum ekki bæði, færum austur í kvöld og yrðum þar á morgunn en færum heim annað kvöld. Veðrið verður samt að ráða aðeins og Sverrir líka hvort það verði hægt að gera eitthvað um helgina.
Hérna er leiðindarok og rigning en að mér skilst er ekki rok fyrir austan að minnsta kosti ekki á Selfossi. Spurning hvort veðrið sé öðruvísi uppfrá hjá okkur. Við eigum alla vega bækur þar sem gott er að lesa í rigningunni. Annars er veðrið að verða svolítið þreytandi en þó skárra en ef kuldinn næði yfirhöndinni, á maður ekki að vera þakklátur fyrir að það sé rigning en ekki frost.
Undanfarna daga hef ég verið að taka til í bílskúrnum en það var alveg kominn tími á það verk. Bara verið hrúgað inn drasli þar síðan í apríl, stefni á að vera búin að taka til þar í næstu viku og farin að gera eitthvað þar. Það eru mörg verk sem bíða þess að vera framkvæmd þar, jólagjafir ásamt fleiru. Spurning með að fara að undirbúa að gera sófaborðið úr afgangsbútunum af harðviðnum sem ég hef sankað að mér undanfarin ár. Litist vel á að gera 2 borð, sófaborð og hornborð, jafnvel 2 hornborð. Það ætti að vera til nóg af bútum. Svo á ég einhvers staðar lista yfir verk sem mig langaði að gera. Svo eru það öll ljósin og lamparnir sem ég ætlaði að gera fyrir Óðalið, náttborðin og margt fleira. Öll mósaíkverkin sem ég ætlaði að gera og bíða mín. Eins gott að láta hendur standa fram úr ermunum á næstu vikum og mánuðum 
Tommi var í útvarpinu í gærkvöldi út af komu Kumai til landsins og kom bara þrælvel út úr því viðtali. Verst að ég get ekki á nokkurn hátt aðlagast þessarri tegund af tónlist. Tecno held ég að hún sé kölluð ef ég man rétt. Mamma lét mig vita og hún hlustaði meira en ég á viðtalið, ég hlustaði bara í gegn um símann hjá henni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.9.2009 | 10:21
10092009
Helgin að nálgast óðfluga, auðvitað verður farið austur á morgunn eins og venjan er á þessum bæ. 3 helgar eftir af september, eins gott að nýta þær vel. 5 helgar í október og 4 í nóvember, mættu vera fleiri. 12 helgar til mánaðarmóta nóv/des en þá er ætlunin að það verði búið að reisa kofann og langt komið með að klæða hann að utan. Einn laugardagur fer í Dag með Leifi í október út í skóla en þá ætla ég að gera fleiri járnrósir og sitthvað fleira. Sennilega fara tvær helgar í Hróarsholtshitting ef ekki 3 helgar. Þá eru 8-9 helgar eftir sem verður að nýta vel, hef nefnilega grun um að minn maður myndi nýta sér þessar helgar til að vera heima og vinna í sínum bíl eða í einhverju sem bíður hans.
Fékk hins vegar geðveika hugmynd sem ég ætla að leyfa að þróast aðeins, kannski væri hægt að slá 2 flugur í einu höggi 
. Seinlegasta vinnan verður í sambandi við sökkulinn og gólfhitann, þegar það verður komið að tréverkinu þá ætti dæmið að ganga mun hraðar fyrir sig. Og það væri sjens á að láta það verk ganga mun hraðar fyrir sig, safna liði um helgar til að vinna. Þá myndi verkið vinnast hraðar.
Sendi póst í morgunn á Mitt fólk í sambandi við hittinginn sem fyrirhugaður var í haust hjá mér. Það væri draumur í dós ef hægt yrði að gera svona hitting að árlegum viðburði þar sem svo margar handverkskonur eru í fjölskyldunni. Hittast jafnvel þó svo að ekkert sé gert annað en að fylgjast með því hvað hinar séu að gera. Alla vega núna í haust verður þetta barnlaus hittingur, það þýðir ekkert að vera með börn í glervinnu.
Hef ekki glóru um hvort það sé búið að steypa eða ekki fyrir austan, vona að það sé búið eða verði gert í síðasta lagi í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2009 | 11:27
09.09.09
úttektardagurinn varð víst í gær og sagði Gummi úttektarmaður að járnabindingin væri vönduð vinna, var von á einhverju öðru frá Pétri og Sverrir
Held það hafi ekki verið steypt í dag svo að vonandi verður það gert í dag.
Óábyrgt að greiða skuldir sínar segir Bjarni Ármanns um sínar skuldir og þetta var bankastjóri. Er nokkuð skrýtið þó svo að hrunið hafi verið svona mikið ef margir bankamenn og fjárfestar hafi haft þessa skoðun. Baugsliðið fer fram á kröfur í þrotabú í þeirra eigu, Björgólfsfeðgar fara fram á niðurfellingu skulda. En við almenningur skulum borga út fyrir líf og dauða okkar skuldir.
Fyrirtæki kærrar vinkonu minnar á Ísafirði og hennar manns var lýst gjaldþrota í síðustu viku, ekki er enn komið í ljós hvort þau haldi Kúlunni. Þeirra fyrirtæki og húsið þeirra var og er soldið sérstakt, eina garðyrkjustöðin á Ísafirði og húsið þeirra er yndisleg Kúla sem vekur mikla athygli bæði innlendra og erlendra ferðamanna. Vinátta okar Cesil hefur varað í mörg ár þó svo að við höfum ekki hitt hvor aðra nema 3x, ég hef meira samband við hana heldur en margar vinkonur mínar sem búa hérna í bænum. Við eigum svo margt sameiginlegt og höfum náð svo vel saman. Við erum báðar mömmur óvirkra fíkla, deilum garðyrkjuáhuganum og svo mörgu öðru.
Það liggur við þegar svona fréttir berast manni að ég skammist mín fyrir að vera að byggja annað hús sem margur myndi telja óþarfa og alls ekki 2009legt. Hef samt enga trú á að við munum sjá eftir því að hafa farið í þessar framkvæmdir. Meira að segja Cesil sér til þess að engin eftirsjá mun verða, við eigum þetta alveg skilið að geta átt afdrep í sveitinni.
Arnari gengur vel lífið án dóps, erum að kynnast nýjum syni okkar. Sverrir hefur afrekað meira en margir vinir og ættingjar okkar hafa gert en það er að sjá hann. Eini gallinn við Arnar er sá að hann er farinn að sprauta aftur með Airbrush inn í bílskúr sem þýðir að það er ekki farandi þangað inn, fyrir utan að lakkið leggst yfir allt. Ætla að tilkynna honum í dag að hann verði að útbúa einhvers konar klefa inn í horn svo að sprauturykið leggist ekki yfir allt saman.
Farin að kremja flöskur inn í bílskúr.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2009 | 17:29
Úttektardagur
er í dag en þá verður platan tekin út. Kannski verður steypt á morgunn, vonandi verður steypt á morgunn eða hinn. Þá verður hægt að byrja á fullu um helgina á veggjum og sökklinum.
KVefið mitt hagar sér betur í sveitinni en hérna heima. Ætti kannski bara að fara austur og vera þar á meðan kvefið er að pirra mig.
Annars er asnalegt að vera bitin af mývargi í byrjun september en það er sennilega vegna þess að það er ennþá sumar. Vonandi helst sumarið langt fram í október eða lengur, það væri nú draumurinn.
Fyrir 28 árum flutti vinafólk okkar út til Noregs og þau hafa ekki komið heim síðan nema í stuttar heimsóknir. Dæturnar giftar norskum strákum og ömmubörnin varla talandi á íslensku. Mér hefur verið hugsað til Stínu og Sigga undanfarið en alltaf er maður að heyra af ungu fjölskyldufólki sem er að flytjast út. Fólk sem mun ekki koma aftur heim að öllum líkindum nema í stuttar heimsóknir. Ungt fólk sem er með frá einu upp í þrjú börn sem er að flytja út í burtu frá öfum og ömmum sem munu sakna barnabarnanna en lífið hér á landi býður ekki upp á neitt annað fyrir unga fólkið okkar, því miður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2009 | 19:03
Komin heim
hjónakornin ásamt ömmustelpunni
Rex, frænkustrákur var í heimsókn 2x á meðan pabbi hans var að vinna.
Fórum austur á fimmtudag og vorum frekar löt þann seinnipart. Þægilegt að vera í útilegu og vinnu í einu, við lesum mikið og slöppum af ásamt því að vinna við kofann og gróðursetningu. Rigningin lét sjá sig þó nokkrum sinnum og þá er ekkert betra en að skríða undir sæng og annað hvort lesa eða skreppa í draumalandið.
Enn hefur ekkert næturfrost eyðilagt berin sem eru í miklu magni og enn er nógu hlýtt til að sofa í tjaldvagni. Um helgina var mikið hlýrra en síðustu 2 helgar og var ekki kveikt á hitaranum á nóttunni. Vonandi helst veðrið svona næstu vikurnar eða helst vel fram í okótber, það væri himmnesk sæla fyrir okkur ef veðrið væri okkur svo hliðhollt.
Pétur og Sverrir unnu á föstudag og laugardag í gólfplötunni og er hún núna tilbúin fyrir steypuna. Ef það verður steypt í næstu viku þá verður hægt að byrja á veggjunum um næstu helgi. Það leggst mjög vel í mig 
Ég var hins vegar að pota niður trjám eftir því sem hnén leyfðu, held að við höfum sett niður um helgina hátt í 30 plöntur og er bara vel sátt við það. En betur má ef duga skal...... ca 200 plöntur eftir
Núna er bara að bíða eftir að það verði farið aftur austur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2009 | 09:21
Kvef og eyrnaverkur
Þessi blanda er ekki beint þægileg, kvefið og eyrnaverkurinn. Fór í klippingu og litun í gær út í skóla og lít ég bara vel út. Krakkarnir fá að gera það sem þau vilja við hausinn á mér, eina skilyrðið sem ég set er að hausinn verði ekki í óeðlilegum litum. Hef aldrei labbað út óánægð eftir svona framkvæmdir.
Held að við höfum náð að halda Jóa áfram í vinnu en það er ekki kominn friður enn og kannski kemur hann ekki fyrr en sumir hafa vikið úr starfi. Mikill meirihluti okkar náði að skrifa undir en sumir komu of seint. Held samt að ég hafi verið sú eina sem skrifaði undir af minni braut og þykir mér það miður.
Veðurspáin fyrir næstu daga er ekkert sérstaklega áhugaverð en við förum að öllum líkindum austur seinna í dag. Ætlunin er að klára undirbúning fyrir fyrstu steypu um helgina og steypa eftir helgi. Svo þurfum við líka að gróðursetja og ég ætla að koma með kerruna okkar heim.
Þarf að muna eftir því að hringja í tryggingarnar á eftir og tilkynna að við viljum ekki láta gera við vagninn. Lendi vonandi ekkert í stríði við þá út af því
. Annað sem ég þarf að gera líka á næstu dögum en það er að finna ástæðu til þess að skipta um meistara og byggingarstjóra fyrir austan. Faglega þarf þess ekki en vegna ýmissa atriða þá vil ég skipta um. Gerði mikil mistök með að fá hann sem byggingarstjóra en ekki Kela. Teljum það langbest að hafa meistarana innan ákveðins hóps. Tilviljun ein ræður því að þeir verði þá allir innan skólans
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Spori
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 2033
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar






